VIÐTAL VIÐ ÞURÍÐI SKÓLASTJÓRA
VIÐTAL VIÐ ÞURÍÐI SKÓLASTJÓRA
Rithöfundur: Harpa Guðrún Baldvinsdóttir
Spyrjandi: Harpa og Auður Anna Kjartansdóttir
Hvað heitir þú?
„Ég heiti Þuríður Óttarsdóttir.“
Hvað ertu gömul?
„Ég er 57 ára gömul.“
Getur þú lýst þér í 3 orðum?
„Já. Kraftmikil, skemmtileg og hlý.“
Hvað finnst þér skemmtilegt að gera í frítímanum þínum?
„Það sem mér finnst skemmtilegast að gera í frítímanum mínum er svona týpískt fyrir eldri konur- miðaldra konur. Það er að vera með fjölskyldunni minni en ég syng líka í kór. Ég syng í Kvennakór Hafnarfjarðar og það er mjög skemmtilegt og svo finnst mér voðalega gaman að fara í leikhús, ég hef mjög mikinn áhuga á leiklist.“
Hvað er skemmtileg staðreynd um þig?
„Ég get búið til þrjú lauf með tungunni.“
Ertu með leyndan hæfileika?
„Ég get gert þrjú lauf með tungunni“ segir hún og hlær.
Getur þú lýst hvað þú gerir í vinnunni?
„Já, dagurinn byrjar nú alltaf á því að maður fái sér kaffisopa. Ég er alltaf mætt vel fyrir átta stundum bara rúmlega fyrir hálf átta, þá sest ég hérna inn á kaffistofu og tala við þá sem eru líka mætt snemma og það er alltaf sama fólkið. Það eru Loftur, það er Renate og það er hún Vala. Og svo kemur Svava, hún mætir líka snemma. Svo tökum við líka svona morgunspjall og morgunkaffi. Ég fer svo inn á skrifstofuna mína og svara öllum tölvupóstunum sem ég hef fengið og reyni að setja upp svona verkefni dagsins, er með svona minnismiða hérna hjá mér." segir hún og bendir á minnismiðana. ,,Svo er ég á bara allskonar fundum, stundum eru þeir skipulagðir fyrirfram á vegum borgarinnar og stundum eitthvað sem þarf bara að hlaupa í hverju sinni. Þannig já, þetta er það sem ég geri í vinnunni.“