MARGRÉT: NÁMS OG STARFSRÁÐGJAFI
MARGRÉT: NÁMS OG STARFSRÁÐGJAFI
Rithöfundur og Spyrjandi: Harpa Guðrún Baldvinsdóttir
Hvað heitir þú?
"Margrét Rósa Haraldsdóttir"
Hvað ertu gömul?
"Ég er 42 ára"
Getur þú lýst þér í 3 orðum?
"Jákvæð, ákveðinn og þrjósk"
Hvað finnst þér skemmtilegt að gera í frítíma þínum?
"Vera með fjölskyldunni og prjóna"
Hvað er skemmtileg staðreynd um þig?
"Vá. Ég er ekki svo skemmtileg" Segir hún og hlær "Skemmtileg staðreynd um mig er að ég tala 3 tungumál "
Ertu með leyndan hæfileika?
"Ég get farið í splitt."
Getur þú lýst því hvað þú gerir í vinnunni?
"Ég er til staðar fyrir nemendur og hjálpa þeim að halda utanum námið sitt og hjálpa þeim með allt sem getur á einhvern hátt áhrif á námið sitt."