Rithöfundur: Lovísa Dóris Guðmundsdóttir
MAMMA MIA!
23. febrúar 2026Árshátíðin verður haldin 25. mars 2026 hér í Víkurskóla. Nemendaráðið er með yfirsýn yfir árshátíðina og plönuðu hana.
Þemað í ár er Mamma mia!, sem er fræg bíómynd frá árinu 2008. Bíómyndin gerist á eyjunni Skopelos og er á Grikklandi. Hún er um tvær mæðgur, Sophie og Donna. Sophie er að fara að gifta sig en hana langar að bjóða pabba sínum. Vandamálið er að hún veit ekki hver pabbi hennar er en hefur þrjá menn í huga. Bíómyndin er byggð á lögum eftir sænsku hljómsveitina Abba. Frægasta lagið þeirra er Dancing Queen sem var gefið út árið 1976. Annað frægt lag eftir þau heitir Mamma mia og er orðatiltæki sem fólk notar þegar því er brugðið, eins og þegar fólk segir Guð minn góður.
Fram koma Páll Óskar og Aron Kristinn DJ.
Húsið opnar 18:30!