BORGARSTJÓRI SPURÐUR ÚT Í MÁLEFNI NEMENDA
BORGARSTJÓRI SPURÐUR ÚT Í MÁLEFNI NEMENDA
Rithöfundur, Ljósmyndari og Spyrjandi: Harpa Guðrún Baldvinsdóttir
Þann 9. febrúar fóru 3 nemendur frá blaðinu á opinn fund með Borgarstjóra þar sem við spurðum hana tvær spurningar.
Hver er þín skoðun á símabanni í skólum?:
„Ég hef náttúrulega ekkert að segja í því máli en mín skoðun er að krakkarnir eiga að ráða þessu, eða allavega fá að segja sína skoðun.“
Strætó í Staðahverfinu gengur bara á hálftíma fresti. Mörg okkar þurfa að taka strætó á hverjum einasta morgni í skólann svo við erum annaðhvort að mæta hálftíma fyrr í skólann eða að mæta þegar það eru sirka 2 mín í tíma eða þegar skólin er nú þegar byrjaður. Og ef við missum af strætó erum við að bíða eftir strætó í hálftíma eða labba í hálftíma. Er eitthvað sem er hægt að gera í því?:
Heiða svarar „Ég stjórna náttúrulega ekki strætó málum, Borgarlínan ætti að leysa það, en það er leiðinlegt að það er vandamálið.“
Seinna segir hún að Borgarlínan breytir engu með strætó og að maður þarf að hafa bara beint samband við strætó.