DANSKA Í UPPÁHALDI
DANSKA Í UPPÁHALDI
Eftir að fá niðurstöðurnar frá könnuninni um uppáhalds kennslustundir nemenda Víkurskóla kom uppáhaldið á óvart. Í niðurstöðunum kom í ljós að með lotu var danska í uppáhaldi flestra en þau fög voru jöfn með 25,9% atkvæða. Ekki kom það á óvart að lota var meðal uppáhaldsins. Í lotu var textíll vinsælastur með 4 atkvæðum af þeim 9 sem völdu lotu sem uppáhalds fagið þeirra.
Meðal þeirra 27 svarenda voru nærri því 2/3 af þeim 9. bekkjar nemar. Af þeim sem merktu við dönsku sem uppáhalds fag þeirra voru 5/7 úr 9. bekk.
Rithöfundur: Tinna Long