19. maí, 2026
Mín skoðun
Þetta er ótrúlega falleg og skemmtileg bíómynd. Mér persónulega finnst seinni bíómyndin vera betri heldur en sú fyrsta. Tónlistin er rosaleg, ég var ótrúlega oft gráti nær. Mér finnst söguþráðurinn mjög góður og sagan er sögð á mjög þægilegum hraða. Hún er ekki flókin en fær þig samt til að hugsa. Ótrúleg bíómynd, mæli svo með!
Söguþráður
Hún er um strák sem heitir Hiksti. Hann er orðinn drekameistari eftir að hafa náð að temja Náttofsa. Hann var viss um að núna væru mannfólk og drekar orðnir vinir, en svo kemst hann að öðru.
Stjörnur 5/5
⭐⭐⭐⭐⭐
11. maí, 2026
Mín skoðun
Allar Maze Runner-bíómyndirnar eru að mínu mati meðal bestu bíómynda í heimi. Söguþráðurinn er ótrúlega góður, hún er ekki of hröð og heldur ekki of hæg, karakterarnir eru ótrúlega góðir og hún er heilt yfir ótrúlega skemmtileg. Hún er kannski dálítið íkt en mér finnst að hún sýni mjög vel hvað gæti gerst við mannkynið.
Söguþráður
Hún er um hóp af fólki sem var settur í völundarhús og veit ekkert af hverju. Þeirra eina markmið er að komast út og lifa af. Það kemur alltaf ný manneskja í völundarhúsið reglulega. Einn daginn kemur strákur í völundarhúsið og þá breytist allt.
Stjörnur 5/5
⭐⭐⭐⭐⭐
4. maí, 2026
Mín skoðun
Þetta var mjög góð bíómynd og ég hafði mjög mikið gaman af henni. Ég sjálf er í hljómsveit og tengdi alveg við ákveðna hluti úr þessari mynd. Hún er mjög góð og nær alveg að grípa mann. Söguþráðurinn er góður og ekki of hraður en heldur ekki of hægur. Ég mæli mjög með henni, sérstaklega ef þig vantar smá hvatningu til að verða betri í einhverju.
Söguþráður
Hún er um strák sem heitir Andrew Neiman og elskar að spila á trommur. Hann er í hljómsveit en satt að segja er hann ekki það góður. Svo kemur maður úr eldri sveit að hlusta á sveitina hans og leitar að einhverjum nýjum til að spila hjá honum. Andrew verður valinn nema kemst svo að því að maðurinn, eða Terence Fletcher, er í alvörunni ekki eins næs og hann leit út fyrir að vera.
Kvörtun
SPOILER það fór mjög í taugarnar á mér í lokin, eða þarna þegar Fletcher var að afsaka sig á kaffihúsinu eða barnum. Hann er, að mínu mati, hrikalegur kennari og átti þetta skilið en hann er svo bara að afsaka sig og segja að hann sé að hjálpa öllum. Ég hefði svo líka misst vitið ef Fletcher hefði beðið mig um að spila á tónleikum og viljandi ekki gefið mér nóturnar að einu lagi. Það var líka klikkun þegar Andrew reyndi að spila á tónleikunum eða í keppninni eftir að hafa lent í bílslysi.
Stjörnur 5/5
⭐⭐⭐⭐⭐
20. apríl 2026
Mín skoðun
Ég elska þessa bíómynd mjög mikið. Mér finnst stíllinn á henni ótrúlega flottur og líka bara hvað hún er frumleg. Ég hef aldrei séð svona bíómynd áður og ég hef líka svo gaman að því með Spider-man bíómyndir að það gerist alltaf svona það sama í hverri mynd en þær eru samt alltaf öðruvísi. Mæli mjög mikið með!
Söguþráður
Hún er um strák sem heitir Miles, hann verður bitinn af kónugló og breytist í Spider-man, þótt að það sé núþegar Spider-man. Hann lærir hvernig maður á að vera Spider-man frá hjálp nokkra aðra Spider-manna.
Stjörnur 5/5
⭐⭐⭐⭐⭐
16. apríl 2026
Mín skoðun
Í fyrsta skipti sem ég sá þessa bíómynd fór ég næstum að hágrenja út af því hvað hún var falleg. Tækningarnar eru rosalegar, það rosalegar að það er erfitt að útskýra hversu flott þetta er. Söguþráðurinn er mjög góður, ég horfi á þessa bíómynd þegar ég þarf að hvíla mig eða róa mig. Karakterarnir eru svo skemmtilegir og krúttlegir að ég elska þá svo mikið. Ég get horft á þessa bíómynd svo oft og hef núþegar gert það. Mæli svo með!!!
Söguþráður
Hún er um lítinn strák sem heitir Sosuke og litla stelpu/fisk sem heitir Ponyo. Ponto langar ótrúlega mikið að verða mennsk nema pabbi hennar neitar því þannig að hún stríkur. Sosuke finnur hana og verður mjög náin henni. Bíómyndin fjallar um samband þeirra og hvernig þau ná að bjarga heiminum.
Stjörnur 5/5
⭐⭐⭐⭐⭐
15. apríl 2026
Mín skoðun
Þetta var mjög áhugaverð bíómynd, ég hef ekki séð neina eins. Ég þurfti sko nokkru sinnum næstum því að hætta að horfa því að ég var bara að hugsa hvað væri eiginlega að gerast. Ég myndi alveg mæla með henni, hún er alveg skemmtileg en er ekki svona týpísk bíómynd eins og nú til dags. Þetta er meira svona um peninga og mál sem tengjast ríkinu. Samt alveg skemmtileg.
Söguþráður
Hún er um 16 ára strák sem heitir Frank. Pabbi hans hefur lent í einhverjum vandræðum með ríkinu og er smáveigis á flótta. Frank gerir það sama, nema er miklu betri í því. Bíómyndin er um hann að flýja og svindla á ríkinu og lögreglunni.
Stjörnur 4/5
⭐⭐⭐⭐
14. apríl 2026
Mín skoðun
Hún er mjög skemmtileg og dúlló. Tónlistin er örugglega uppáhalds hluturinn minn um þessa bíómynd. Söguþráðurinn er mjög góður og það er auðvelt að fylgja honum. Eitt vandamál, sem er samt bara mín sök, er að ég gleymi alltaf að þessi bíómynd er til. Hún er samt mjög góð.
Söguþráður
Hún er um bláan fugl sem heitir Rio og var ættleiddur af konu sem heitir Linda. Það kemur svo maður til þeirra eftir mörg ár og segir henni að Rio sé eini karlkyns fuglinn eftir af hans tegund og að hann þurfi að fara og hitta síðasta kvenkyns fuglinn af hans tegund í Brasilíu. Nema þegar hann fer þangað þá lendir allt í kásu.
Stjörnur 5/5
⭐⭐⭐⭐⭐
13. apríl 2026
Mín skoðun
Þessi bíómynd er eiginlega alveg eins og White chicks, ef þú hefur ekki séð hana þá mæli ég með. Nema Big Momma's House kom á undan svo þau voru ekki að herma. White chicks að mínu mati er fyndnari og skemmtilegri en þessi var líka alveg skemmtileg. Ég fór að hlægja stundum en ekki eins mikið og ég var að búast við. Hún er mjög endurtekin finnst mér og ekki það fyndin en samt alveg ágætlega skemmtileg.
Söguþráður
Hún er um alríkislögreglu (FBI) sem dulbýr sig með mömmu konu sem er grunuð um að hafa hjálpað með rán á banka. Nema þegar líður á bíómyndina kemst hann að öðru.
Stjörnur 3/5
⭐⭐⭐
11. apríl 2026
Mín skoðun
Þú skilur ekki hvað ég elska þessa bíómynd mikið. Ég gæti horft á hana aftur og aftur í mörg ár án þess að fá leið á henni. Tónlistin er ótrúlega góð og svo líka söguþráðurinn. Mér finnst þetta vera fullkomin blanda af rómantík, ævintýri og söngleik. Þetta er svona týpísk Disney-bíómynd en samt svona týpísk á góðan hátt. MÆLI MEÐÐÐÐÐ!!!
Söguþráður
Hún fjallar um stelpu sem heitir Garðabrúða. Hún á heima í turni með „mömmu“ sinni, mother Gothel. Hún bannar Garðabrúðu að fara úr turninum og segir henni að það sé ekki óhætt að fara út fyrir hana. Nema Garðabrúða verður mjög forvitin og fer út í leiki með Flynn Ryder, ræningja.
Stjörnur 6/5 (Ég elska Disney myndir mjög mikið)
⭐⭐⭐⭐⭐⭐
10. apríl 2026
Mín skoðun
Fyrsta bíómyndin var miklu betri. Þessi var meira bara svona ógeðsleg. Hún varð dálítið ruglingsleg í lokin og ég skildi ekki mikið hvað var í gangi. Ég myndi alveg mæla með þessari bíómynd en hún er ekki mitt uppáhalds.
Söguþráður
Hún fjallar um söngkonu sem heitir Skye Riley. Hún hefur verið að glíma við fíkn og þunglyndi. Því að þetta er framhald þá hefur þessi eiginlega sama söguþráð og sá fyrri. Hún byrjar sjálf að sjá hluti eftir að hafa hitt vin sem hefur líka verið að sjá hluti. Þegar líður á bíómyndina veit maður ekki hvað er satt og ekki.
Stjörnur 4/5
⭐⭐⭐⭐
9. apríl 2026
Mín skoðun
Ég verð ekki mjög hrædd þegar ég horfi á hryllingsmyndir en þessi náði mér alveg. Mér finnst þetta vera mjög góð blanda af hryllingi og geiðveiki, það bara að maður sé að missa vitið. Það var svona eins og ég væri aðalkarakterinn í bíómyndinni, það er náð svo vel að draga mann svona inn. Svo þegar líður á þá veit maður ekki hvað er satt og ekki, það fannst mér mjög óþægilegt en líka skemmtilegt.
Söguþráður
Hún fjallar um sálfræðing á spítala sem heitir Dr. Rose. Hún vinnur með mjög skelguðu og kvíðnu fólki. Einn daginn kemur kona að tala við hana og byrjar að lýsa fyrir henni einhverju sem hún er að sjá. Eftir þetta viðtal byrjar Rose að sjá það sama og konan var að lýsa. Eftir því sem líður á myndina verður fyrirbærið grimmara og grimmara.
Stjörnur 5/5
⭐⭐⭐⭐⭐
25. mars 2026
Mín skoðun
Í tilefni árshátíðanna þá er þetta bíómynd dagsins. Þetta er mjög góð bíómynd, hún er bara svona einföld en ekki of einföld og kósý. Tónlistin er rosalega góð og klassík, ég meina allir þekkja ABBA. Það er mjög auðvelt að fylgja sögunni og bara djamma við þessa mynd. Ég mæli mjög með því að horfa á hana, sérstaklega fyrir árshátíðina.
Söguþráður
Hún er um tvær mæðgur, Sophie og Donna. Sophie er að fara að gifta sig en hana langar að bjóða pabba sínum. Vandamálið er að hún veit ekki hver pabbi hennar er en hefur þrjá menn í huga.
Stjörnur 4/5
⭐⭐⭐⭐
24. mars 2026
Mín skoðun
Ef þig langar að hágrenja þá er þetta bíómyndin. Ég hef horft á hana ótrúlega oft og fer alltaf að grenja. Þetta er mjög sorgleg mynd en líka ótrúlega krúttleg. Ef þú ert meiri fyrir hryllingsmyndir og action þá er þessi bíómynd ekki fyrir þig en ég mæli samt með henni.
Söguþráður
My girl er um ellefu ára gamla stelpu sem heitir Vada. Hún á vin sem heitir Thomas og þau eru eiginlega alltaf saman. Sagan fylgir þeim tveim og vináttu þeirra.
Stjörnur 4/5
⭐⭐⭐⭐
23. mars 2026
Mín skoðun
Ótrúlega góð bíómynd og að mínu mati ættu allir að horfa á hana. Svo ótrúlega mikið af stelpum þurfa einhvern til þess að líta upp til og hafa sem fyrirmynd og Mulan er fullkominn fyrir það. Þessi bíómynd sýnir svo ótrúlega hluti og vekur athygli á sexisma og neikvæðu áhrifum stríðs. Á tímanum sem þessi bíómynd var gefin út, árið 1998, var ekki mikil umræða um sterkar konur í sjónvarpsefni. Svo hún var langt á undan sínum tíma. Ég mæli með þessari bíómynd hundrað sinnum aftur og aftur. Tónlistin er líka ótrúlega góð.
Söguþráður
Mulan er um stelpu frá Asíu sem fellur ekki rosalega vel inn í steríótýpíska útgáfu af stelpu. Henni hefur verið ótrúlega oft sagt að hún valdi fjölskyldu sinni vonbrigðum og að hún þurfi að bæta sig og láta meira eins og kona. Það byrjar svo stríð og pabbi hennar er skipaður að berjast. Nema hann er mjög veikur svo hún ákveður að fara í staðinn fyrir hann.
Stjörnur 6/5
⭐⭐⭐⭐⭐⭐
20. mars 2026
Mín skoðun
Það er smá erfitt að fylgja söguþræðinum. Að mínu mati breyttist sagan aðeins of fljótt. Það er alveg skýrt hvað er að gerast en þetta eru meira svona tvær sögur í einni bíómynd. Ég hágrét samt í lokinn, svo ef þig langar að grenja þá geturðu horft á þessa bíómynd. Ég skil samt ekki alveg karakterinn hennar Molly, sem er aðalkarakterinn. Ég dýrka hana Ray, sem er litla stelpan á bíómyndakápunni. Allt í allt er þetta góð bíómynd en það er bara smá erfitt að fylgja.
Söguþráður
Uptown Girls er um konu sem heitir Molly og er alltaf að djamma. Hún fær svo vinnu sem barnapía og passar upp á átta ára stelpu sem heitir Ray. Þær eru gerólíkar nema því meira sem þær kynnast því betri vinkonur verða þær.
Stjörnur 4/5
⭐⭐⭐⭐
19. mars 2026
Mín skoðun
Mér leið eins og ég hefði verið að horfa á þáttaseríu nema sleppt nokkrum þáttum. Þetta er góð hryllingsmynd, hún er ekki með rosalega mörg „jump scares“, þetta er meira bara svona að þér líður óþægilega. Það tekur mjög á að reyna að skilja hvað er í gangi og ég held að maður eigi ekki að skilja hvað er að gerast. Ég skildi ekki mikið, þótt ég hefði horft á alla bíómyndina með fullri athygli. Hún fær þig til að hugsa.
Söguþráður
In the tall grass er um fólk sem týnist í risastóru túni þar sem er bara rosalega hátt gras. Nema þegar líður á myndina fatta þau að það er ekki allt í lagi þarna.
Kvörtun
SPOILER!!! Ég í alvörunni bara skil ekki hvernig þau voru alltaf að koma aftur og aftur til baka. Eru þau í svona vídahring eða er þetta svona eins og í tölvuleik þar sem þegar þú deyrð þá kemurðu alltaf aftur. Af hverju eru þau svo alltaf að koma aftur? Snerti ekki líka Toby eða Tobin-steininn í byrjun bíómyndanna. Er það ekki þannig að ef þú snertir steininn þá geturðu ekki farið? Hann fór í lok myndarinnar. Ég er svo lost.
Stjörnur 3/5
⭐⭐⭐
18. mars 2026
Mín skoðun
Kannski er ég bara algjör grenjuskjóða en ég grét aðeins of mikið yfir þessari bíómynd. Hún var alltof krúttleg og mér fannst hún ótrúlega fyndin. Allir karakterarnir eru svo skemmtilegir og fyndnir. Þessi bíómynd er svona romcom/gamanmynd en ég myndi ekki lýsa henni sem einhverri rosa cheesy ástarbíómynd. Þetta er frekar bara svona kósý og dúlló bíómynd til að horfa á. Ég sjálf myndi mæla með henni, 100%.
Söguþráður
Juno er um stelpu sem heitir Juno og verður ólétt á 16 ára aldri. Sagan leiðir okkur í gegnum tímabilið sem hún er ólétt og hindranirnar sem koma með því.
Kvörtun
SPOILER!!! Ég skil ekki af hverju Mark, gæinn sem var að ættleiða barnið, hættir svo bara við allt í einu. Hann var næs í byrjun en svo hættir hann allt í einu bara við þegar þau eru búin að segja já við því að ættleiða barnið. Vanessa er samt svo mikið krútt, ég elska hana.
Stjörnur 5/5
⭐⭐⭐⭐⭐
17. mars 2026
Mín skoðun
Ef ég þarf að vera alveg hreinskilinn þá er þetta ein af bestu bíómyndum sem ég hef séð. Þetta er mjög dúlló og kósý mynd, hún er ekki of hæg eða hröð og karakterarnir eru mjög skemmtilegir og áhugaverðir. Ég gæti horft á hana aftur og aftur á hverjum einasta degi og ekki fengið leið á henni. Það er notuð mjög mikil kaldhæðni, sem mér finnst ótrúlega fyndið, en svo er líka atriði þar sem mig langar að fara að gráta. Ég myndi mæla með þessari bíómynd fyrir hvern sem er.
Söguþráður
10 Things I Hate About You er um stelpu sem heitir Kat, eða Katarina Stratford. Hún hefur engan áhuga á að vera í sambandi eða fara á böll. Fólk lýsir henni sem „heinous bitch“ en þegar líður á myndina breytist það aðeins.
Stjörnur 5/5
⭐⭐⭐⭐⭐