Samfés
Samfés
Rithöfundur: Íris Tinna Hauksdóttir
Samfestingurinn er ball og söngvakeppni fyrir 8.-10. bekk, ballið fór fram 8. maí. Það var mætt í Vígyn klukkan 17:40, lagt af stað 18:20 og ballið byrjaði 19:00. Söngvakeppnin var 9. maí og byrjaði klukkan 14:00. Samfestingurinn samanstendur af nokkrum viðburðum.
Á föstudeginum komu unglingar og starfsfólk með rútum upp í Laugardalshöll á risa ball þar sem allar félagsmiðstöðvar hittast. Á laugardeginum fór Söngkeppni Samfés fram sem er einnig send út í beinni útsendingu á RÚV. Þar komu fram allskonar krakkar. Ungmennaráð Samfés sér alfarið um að setja upp dagskránna og velja þá tónlistarmenn og hljómsveitir sem koma fram á Samfestingnum. Harpa Guðrún í 9. bekk söng fyrir hönd félagsmiðstöðvarinnar Vígynar og stóð hún sig mjög vel. heŕna fyrir neðan er linkur inn á RÚV sem sýnir söngkeppnina, þið getið séð hvernig hún stóð sig ef þið spólið á tíma: 1:20:32