MÁLEFNI FYRIR GÓÐGERÐADAGA
MÁLEFNI FYRIR GÓÐGERÐADAGA
Rithöfundur: Finnur Árni Jónsson og Þórdís Erla Þórðardóttir
Þann 4. og 5. júní verða undirbúningardagar fyrir góðgerðarhátíðina sem verður svo þann 6. júní.
Hægt verður að kjósa um hvað skólinn ætlar að styrkja en þá verður hægt að velja á milli þessa samtaka:
UNICEF
UNICEF er stærsta góðgerðastofnun barna í heiminum og starfar í yfir 190 löndum. Það leggur af mörkum fyrir krakka í stríðum, alveg eins og á Gaza og í Úkraínu, en það beinir einnig athygli sinni að barnavernd, fötluðum börnum, loftslaginu, menntun og miklu fleira.
Barnaspítali Hringsins
Hringurinn er kvennfélag, stofnað árið 1904. Aðal markmið félagsins er að vinna að líknar- og mannúðarmálum barna.
Ungmennastarf SÁÁ
SÁÁ eru samtök stofnuð 1. október 1977 sem berjast gegn vímuefnavanda, til dæmis áfengi, nikótíni, kannabis, kókaíni og fleira, og vinna einnig gegn fordómum á fíknivanda og tryggja fólk með fíknisjúkdóma.
Kraftur
Kraftur er félag sem tekur á móti ungu fólki með krabbamein og aðstandendum þeirra. Árlega greinast um 1.600 íslendinga með krabbamein á hverju ári af þeim eru um 70 á aldrinum 18 til 40 ára.
Ljósið
Ljósið er stuðnings- og endurhæfingarmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. Markmið Ljóssins er að fólk fái sérhæfða endurhæfingu- og stuðning.
Ljónshjarta
Ljónshjatra eru samtök til að styðja við fólk sem hefur misst maka og börn sem hafa misst foreldri. Samtökin hafa starfað síðan í nóvember árið 2013.