Höfundur: Finnur Árni Jónsson
Höfundur: Finnur Árni Jónsson
Plata vikunar 22.-28. mars 2026
Sweet Boy - Malcolm Todd
Earrings
Roommates
On My Shoulder
Thailand
Ladygirl
Sweet Boy
Rodrick Rules
4Me 4Me
Art House
Sore Throat
Rockstar Boyfrieend
New Friends (feat. Eem Triplin)
Accurate
Hot in NY
Pillow
Mr. Incorrect
Malcolm Todd er tónlistarmaður sem sló í gegn frekar hratt. Hann byrjaði bara eins og margir aðrir, vann hjá Cold Stone Creamery og var í námi í tónlistarframleiðslu, á meðan hann samdi fyrstu lögin sín.
Árið 2023 fór lagið hans Art House á flug á TikTok og þá fór allt af stað. Skyndilega var fullt af fólki farið að hlusta á hann og hann varð miklu þekktari á stuttum tíma. Svo kom lagið Roommates, sem hjálpaði honum helling. Í kjölfarið fékk hann samning hjá Columbia Records, sem var stórt skref fyrir hann.
Árið 2024 gaf hann út plötuna Sweet Boy og fór á tónleikaferðalag, meðal annars með Omar Apollo. Það hjálpaði honum að ná til enn fleiri hlustenda.
Árið 2025 kom svo önnur platan hans, Malcolm Todd. Lagið Chest Pain (I Love) komst inn á Billboard-listann, sem er mjög góður árangur fyrir nýjan listamann. Hann gaf líka út deluxe-útgáfu, Malcolm Todd (still), með fleiri lögum sem fengu góðar viðtökur.
Árið 2026 gaf hann síðan út lagið Breathe, sem sýnir að hann er enn að þróast og halda áfram að gefa út nýja tónlist.
Nýlega sagðist hann vera að vinna í nýrri plötu, svo við ættum að sjá eitthvað nýtt frá honum á næstunni.
Vísbending fyrir plötu næstu viku
Plötur viknanna: